Vælsdruslurnar

[V.æ.l.s.d.r.u.s.l.u.r]

04.02.2009 13:09:45 / kosovo lover

Fann bloggid fra utskriftarferdinni alraemdu

It takes too long to tell you about all the trip but here are the highlights

*The second day i was there i went to BCM and fell on the head on the dancefloor and had to go to a hospital in an ambulence (i´m not kidding)

*Tons of old british men yelling at you nasty words and of course yelling:
"Easy, easy, easy, no you shut up, no you shut up"

*People having a bridal and stag party (so many in funny costumes)

*I danced up on the bartable at Coyote Ugly (it was just like the movie, i loved it and the girls at the bar taught us the devil dance from the movie)

*I became the DJ of the hotel

*I met four wonderful guys from Reading who became my good friends and ironically i heard from my father who said he was there at the moment and that he has an apartment there because of his school and work.

*Went to lots of restaurants with funny names like La cucharacha, aladin, zorro, abracadabra and went to a nightclub called Chaplin.

*got sunburned and therefore stayed out of the sun so i´m not tan.

*drank a lot of beer in this trip (man they were cheap)

*When i was alone in my room and my friends in the other they were too lazy to come to me so they phoned my british friends and sang
"All by herself, Anna is all by herself in room 1101"

*Guy with a tattoo above and below his belly that said MADE IN WALES

*We had drinks in a cup shaped as a penis

*tons of disabled people at our hotel

*British ugly men running around the pool in a g-string

Funny quotes: (from me and my friends)
"SKVÍÍÍ (new cheering sound)"
"shes fucking ugly"
"i´m the tacoo"
" help i cant dance (meant swim)"
"I´ll be right back (came an hour later)"
"How are you? OLD"
"I will, i will fuck you (instead of I will rock you)"
"help, i´m a fish"
"Chick with dick, no wonder she is my best friend)"

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 01:39:59 / Jaloux

Nei I'll fight back

Djöfullinn maður.

Ég er PISSFULL enda drakk ég eitthvað svaka vín og freyðivín og BJÓR!!!!! HALLÓ!!!! ÉG DREKK EKKI BJÓR!!!! Samt borgaði ég ekki neitt af þessu. Sweeeeeet!

Ég var að fatta að ég hringdi í Guðrúnu pissfull og hún var edrú, ég er bara ó mæ god hvað er að mér? Nú á eftir að hlakka í Guðrúnu næst þegar hún hringir í mig og ég er edrú. AAAAAAA. :whut:

En já, ég sem sagt fyllti endurskoðanda og drap hann. :( Ég er ekki að djóka hann var eins og kelling vældi bara um að hann mætti ekki drekka meira en ég hlustaði ekki og hann bara dó. Svona er ég illa innrætt. :( Ég er eiginlega með samviskubit....

Ég held ég ætli að horfa á sjónvarpið núna... :klikk:8|8):d:lol::p


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.12.2008 18:25:51 / Jaloux

Bloggið

Erum við að tala um að það megi fara að jarða þetta dæmi okkar?

Nei ég bara spyr. :|:s:|:s



» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2008 03:02:02 / Jaloux

Hættu að hringja í mig...

Bara svo þið vitið það, þá hætti ég ekkert að spamma bloggið okkar af tómu bulli fyrr en einhverjir aðrir fara að skrifa. ;)

En já, núna er kominn desember og það styttist í jólin og áramót og tja... sumarið bara. Ég er á milljón enda algjörlega staðfest að ég get ekki gert ekki neitt. Ég er að banna sjálfri mér að reyna að byrja aftur í Taekwondo þar sem ég hef nú þegar ógeðslega mikið að gera en ég er svo sjúk í hausnum að ef ég á rólegan dag fer ég að pæla í hvað það væri gaman að gera hitt og þetta.

En mig langaði líka að sýna ykkur peysuna sem ég var LOKSINS að klára núna í nótt (ég skrifa þetta kl 3). Ég er helvíti sexí fyrir en í þessari peysu treð ég áður ótroðnar slóðir!!!



Ps. Ég fór á DEIT helgina á undan þessari sem var núna. Núna megið þið slúðra um þetta því ég segi ekki meir. 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 16:50:13 / Jaloux

Draumaprinsinn?!




Ef einhver veit um einstakling sem myndast þetta vel í reiðbuxum þá skulið þið segja honum að hringja í mig. ;)
 
Ég sem sagt fór að skoða hestaföt í dag og þar sem það er sjúklega dýrt ákvað ég að hugsa málið og skoða hestabæklinga á netinu. Já nei ég endaði á að perrast yfir öllum gaurunum í þröngum hestabuxum. Mmmm. 8) Ég skal alveg borga mikið ef a) ég fæ sjúklega flottan rass (kvenútgáfuna) eða b) kaupa karlmannsbuxur ef ég fæ einn flottan gaur í kaupbæti.

Þið vitið númerið mitt, ekki vera feimnar að láta alla flottu gaurana fá það. Ég bíð við símann. :haha:



» 2 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 13:07:10 / Jaloux

úúúúúúú



Eigum við að ræða þennan mann eitthvað???

Nei ég hélt ekki.
:whut:

Nóvember hálfnaður, Dagný útskrifuð og ég orðin 23. ALLT að gerast bara! Til hamingju Dagný!! :D

Bloggið okkar er hálfeinmana eitthvað þessa dagana, allir rosa uppteknir af því að þykjast eiga sér líf. ;) Ég er bara vinna, skóli, ræktin. Bráðum fer kvikindið að bætast við ásamt því að nefndarstörfin fara á fullt og þá held ég að ég verði fyrst geðveik. 2009 verður rosalegt ár. ;)

Farið vel með ykkur í kreppunni og látið heyra í ykkur. Allt slúður er gott slúður! :klikk:




» 5 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 23:22:08 / Jaloux

Drama! Drama!

Nei djók. Ég hef ekkert drama til að færa ykkur.

Ég  var hins vegar að spá... Er einhver stemmari fyrir
Astrópíukvöldi einhverntíman í vetur?

Þá var ég aðallega að hugsa að aðalatriðið sé að skemmta okkur og hvor annarri og kannski ef áhugasamir vinir vilja vera með að leyfa það.

Pælingin var sem sagt... ÁFENGI og búningar skylda. Svo myndum við sem algjörar astrópíur bara taka djókið á þetta og eiga eitt gott nördakvöld dauðans. Hittast bara snemma og borða saman og ekkert vera að fara að djamma neitt bara chill og óerótískur hlutverkaleikur. ;)

Mig grunar að þetta sé eitthvað sem þarf að undirbúa með smá fyrirvara eins og til dæmis að búa til karaktera og svona svo við vitum hvernig búningarnir okkar eiga að vera. Ég kann EKKI NEITT en ég veit um allavegana tvo aðila sem hafa verið svona nördar og ég get pínt til að hjálpa mér að skipuleggja svona eða að minnsta kosti segja mér hvað þarf að gera. Mér var sagt að þetta væri "ekki flókið, bara mjög einfalt og létt að læra".

Í versta falli þá beilum við ef allt fer til fjandans, eigum samt góða stundir saman og drekkum og étum og tökum svo massa djamm á þetta í búningunum okkar. :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 22:12:30 / Jaloux

ROGER!

Yo Yo Yo! What up?!

Mér datt svona í hug að tékka mig inn og staðfesta að ég sé enn á lífi. Veturinn loksins kominn í allri sinni dýrð, stormviðvörun í kvöld og svona. :haha:

Ég átti loksins tækifæri á að slaka á og vera í fríi frá öllum skóla núna í haust og ætlaði sko að gera minna en ekki neitt. Vinna mér inn pening, eyða honum og spara. Hvað entist það lengi? Innan við tvær vikur.

Ég er ekki að djóka í ykkur, ég er fullviss um að ég sé eitthvað smá pínu pons ofvirk. Síðan septemberbyrjun þegar andlega slökunin átti að byrja og ég að liggja í leti og gera ekki neitt er ég búin að eftirfarandi:

  1.  Fá vilyrði fyrir að byrja í Bifröst í fjarnámi í lok september
  2. Skrá mig í nútímadanstíma
  3. Byrja í raddþjálfun
  4. Skrá mig í ÞRJÁ AÐRA dansa!!!
  5. Er að reyna að plana ferð til LA í vetur, hugsanlega fyrir áramót
  6. Bjarga því að hesturinn minn komist í hús á mettíma
  7. Svo er ég enn að hjóla inn á milli í myrkrinu og rigningunni :þ

Okei, vill einhver staðfesta að þetta sé mjög eðlilegt? Ég ákvað að láta blakið liggja á milli hluta en vá hvað mig langar. :whut:

Dr. Drusla, can you help me?

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 07:08:49 / kosovo lover

Ahugavert svar a youtube

"Anna, I know you personally and I have to say that whatever and whoever tells you to ignore negative comments, please do think about it sometimes. You have a horrible voice, are not talented and are only making a fool of yourself! I am sorry, but you should remove this video as really everyone who knows you is laughing behind your back. A friend."

Eg er bara forvitin ad vita hvad tid segid um tetta, erud tid sammala?

Aetti eg ad eyda videoinu eda svarinu?


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 12:44:25 / kosovo lover

Druslur... Vaelsdruslur


ps. rauda ljonid (Dagny) tok myndina


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 08:37:42 / kosovo lover

Sma breyting

Var ordin treytt a utlitinu svo akvad ad breyta sma :P vonandi list ykkur a tad.

Baetti einnig vid konnun, tar sem eg hef ekki hugmynd um hvad eg aetti ad starfa sem. Allar uppastungur vel tegnar.... kommentid, gefid mer hugmyndir.

Var i Kosovo med Lumi og hitti yndislegu fjolskyldu hans. Komin nuna aftur til Vinar, er i starfstjalfun hja Evropska einkaleyfastofunni (European Patent Office) til 5.september og svo er eg ad leita a fullu ad fullri vinnu fyrir veturinn.

Knus fra Vin
Anna C

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 20:38:21 / Jaloux

Líf eftir skóla

Jæja, ég tók upp á því að skreppa í verkfall í gær. :whut: Ég svaf það nú reyndar að mestu af mér og vaknaði á svipuðum tíma og samningar tókust. Það var því mikill baráttuhugur í mér. 8)
Annars þá var ég farin að byrja að óttast um líf mitt eftir að hafa lesið 'bloggið' í aðdraganda verkfallsins. Maður hefði haldið að þetta fólk hefði fengið smá reality check eftir Lúkasarmálið en nei, það er enn að éta allt hrátt upp og það er greinilega engin rökhugsun í gangi þegar það byrjar að hamra á lyklaborðið. En núna er þetta næstum búið og fólk getur gleymt okkur aftur þar til næst. :haha:

Ég er búin að vera að vinna svo mikið síðan ég kláraði að stundum man ég ekki alveg hvað ég heiti. Ég lýg því ekki, mér er farið að hlakka smá til vetrarins og að geta slakað smá á. Svona til að hjálpa mér að þrauka þessa vinnutörn í sumar er ég reyndar búin að panta mér ferð á 5 stjörnu hótel í Berlín í september og fer með mömmu. Rétt up hönd sem er hissa á staðarvalinu! Ha, enginn?!? híhí, já ég elska Berlín. Þetta verður svona slökunar og dekurferð. 8)

Annars er ég ekki með neitt spes slúður fyrir ykkur eins og er, en ég er að reyna að vinna í því. Læt ykkur vita hverning gengur ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 21:04:29 / kosovo lover

Vælsdruslurnar: together again



» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 14:43:58 / comic girl

harðsperrur

Vúhúú... vúhúú

Ég sem sagt fór að spila skvass í gærkveldi, fyrsta skipti í langan tíma ;) og það var geðveikt gaman!!! Ég spilaði við Reyni frænda og Anton og þeir voru ekki of vondir við mig svo að þetta var fínt. Ég byrjaði strax að finna fyrir blessuðu harðsperrum, átti nú alveg von á því eftir svona langa pásu, var bara ánægð að vita að var enn með þessa vöðva. Getið þið ímyndað ykkur að vera með harðsperrur í öklunum og alveg upp í bak :haha: geðveik tilfinning vúhúú hvað ég var dugleg!

Heyrumst og sjáumst
Comic girl


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 14:28:13 / comic girl

Flugumferðastjóri í hópnum!

Ég tek tilkynningu dagsins að mér í dag þar sem ég veit að Möttu og blogcentral á ekkert alltaf svo vel saman.

Mig langar til að óska Matthildi okkar TIL HAMINGJU MEÐ AÐ HAFA NÁÐ PRÓFINU! Þú ert búin að standa þig frábærlega í náminu og þú veist það er satt ;) Nú ertu orðin flugumferðastjóri eftir krefjandi en skemmtilegt nám. Ég veit að þetta er eitthvað sem þig er búið að langa, byrjaði sem hugmynd sem þú hafðir út af fyrir þig, minntist pínu á þetta við mig í einu af strunsunum okkar í gegnum krinluna á verzló-árunum okkar og svo greipstu tækifærið að lokum og skelltir þér af öllum óvörðum í flugumferðastjórann. Þú ert ótrúlega dugleg, klár og skemmtileg stelpa eða ung kona, enn og aftur til hamingju með þennan áfanga og vonandi áttu góðan dag Matta mín.

Með kveðju
Guðrún Hrönn
og eflaust hinar Vælsdruslurnar líka :d


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22